“Ég er 22 ára dóttir fatlaðrar konu sem er á örorkulífeyri. Ég hef alltaf þurft að vinna með námi. En nú næ ég að útskrifast frá Háskóla Íslands um áramót úr erfiðu námi á sviði raungreina. Ég er í þremur vinnum með skólanum, ég vinn á rannsóknarstofu, sem ólaunaður aðstoðarmaður kennara í HÍ og líka aðra hvora helgi með náminu.
Ég er mjög þreytt og mig langar mikið að taka mér pásu á vorönn og hefja ekki mastersnám fyrr en haustið 2026 en ég get ekki tekið mér frí frá námi nema að flytja frá henni mömmu. Ef ég er ekki í námi og bý áfram heima missir mamma nefnilega heimilisuppbótina hjá TR. Heimilisuppbót er einungis greidd þeim sem búa einir á heimili.
Foreldrar fá reyndar greidda heimilisuppbót vegna barna á aldrinum 18-25 ára – en einungis ef þau eru í námi. Þetta þýðir að ég bý ekki við jafnræði á við flesta jafnaldra mína á Íslandi, sem geta búið heima án þess að það hafi áhrif á tekjur foreldris/foreldra sinna”.
