• Vinstrið Hafnarfirði

    Með einum eða öðrum hætti eru málefni Vinstrisins gegn fátækt.

    Tiltek hér nokkur:

     

    Veitum þjónandi forystu

    Tryggjum samfellda þjónustu með áherslu á velferð, fjölmenningu, forvarnir og andlega heilsu. Við krefjumst þess að leikskólastigið verði lögfest sem fyrsta skólastig með fjármagni frá ríkinu. Nám í íslensku verði innflytjendum að kostnaðarlausu.

     

    Börnin okkar allra

    Tryggjum öllum börnum og ungmennum fjölbreytt og aðgengilegt tómstundastarf. Styttum biðlista í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og niðurgreiðum kostnað barna frá tekjulágum heimilum. Ungmennahús og félagsmiðstöðvar eiga að vera opin alla virka daga.

     

    Sjálfbært skipulag og húsnæði

    Tryggjum fjölbreytt og hagkvæmt húsnæði og eflum almennan leigumarkað. Húsnæði fólks eru mannréttindi, ekki verslunarvara. Skipulag á að byggja á lífsgæðum, vernd grænna svæða og loftslagsmarkmiðum. Innviðauppbygging og íbúðauppbygging eiga að haldast í hendur.

     

    Menning og samvera

    Eflum menningu, listir og samverurými og tryggjum aðgengi að félagsheimilum, bókasöfnum og skapandi starfsemi. Menning er bæði samfélagsauður og efnahagsleg auðlind. Sköpum aðstöðu fyrir áhugamannafélög og leikhópa.

    Með kveðju

    Björg Sveins f.h. Vinstrisins í Hafnarfirði