Takk fyrir erindið og fyrir mikilvægt starf EAPN í baráttunni gegn fátækt og félagslegri einangrun.
Í okkar stefnu byggir velferð borgarbúa á mannréttindum, virðingu og sjálfsákvörðunarrétti hvers og eins. Við leggjum áherslu á að þjónustan sé aðgengileg, notendamiðuð og veitt nær íbúum, með einfaldari ferlum og minni skriffinnsku.
Fátækt tengist oft íþyngjandi húsnæðiskostnaði og því viljum við auka framboð af félagslegu húsnæði og tryggja fjölbreytt búsetuúrræði. Við styðjum einnig nálganir eins og „húsnæði fyrst“ til að mæta þörfum þeirra sem standa höllum fæti.
Við leggjum sérstaka áherslu á forvarnir og stuðning við börn og fjölskyldur, meðal annars með aukinni samvinnu velferðarþjónustu, skóla og barnaverndar, svo hægt sé að bregðast fyrr við og styðja betur við börn sem búa við erfiðar aðstæður.
Að lokum teljum við lykilatriði að hlusta á og vinna með fólki sem býr við fátækt og samtökum þess við mótun lausna.
Kær kveðja,
Viðreisn í Reykjavík