Jóna heiti ég og er einstæð móðir með þrjú börn undir 18 ára aldri. Ég taldi mig heppna að hafa fyrir einu og hálfu ári síðan fundið íbúð fyrir fjölskylduna þar sem leigan er 280.000 þúsund kr. á mánuði og með langtímasamningi.
En nú tekur óvissan við þar sem leigusalinn sendi mér nýlega uppsagnarbréf, en íbúðin á að fara í sölu. Ég verð því húsnæðislaus frá febrúar næstkomandi. Ég hef áður lent í því að þurfa að flytja úr leiguhúsnæði þar sem húsnæðið var selt.
Leigumarkaðurinn er að rústa í mér taugakerfinu og heilsan hrakar útaf þessu álagi, því það vofir alltaf yfir að eigandi ákveði að selja.
Ég er því að leita að öðru leiguhúsnæði. Leiguverð er mjög hátt á því sem er í boði og ég sé ekki fram á að hafa efni á að leigja aðra íbúð, þar sem ég hef einungis örorkulífeyrir mér til framfærslu. Eina von mín er sú að ég fái félagslegt leiguhúsnæði. Ég hef verið á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði í 5 ár og fær engin svör frá félagsþjónustunni um hvar ég er á biðlistanum eða hvenær ég geti átt von á því að fá úthlutun. Svörin sem ég fær gefa ekki tilefni til bjartsýni um að ég fái íbúð í bráð.
Ég þrái húsnæðisöryggi. Fjölskyldan mín býr erlendis og ég hef því ekkert bakland á Íslandi. Ég er að íhuga að flýja land og flytja til Spánar til foreldra minna, til að hafa möguleika á að safna fyrir íbúð á Spáni. En það myndi þýða mikið rask fyrir fjölskylduna þar sem ég get einungis flutt með yngsta barnið mitt. Eldri börnin eru í sameiginlegri umgengi hjá föður sínum og því myndi flutningur þýða að slíta börnin í sundur frá hvoru öðru og dæturnar myndu missa mömmu sína stærstan hluta ársins. Guð má vita hvaða áhrif það gæti haft á þau öll. Mér finnst eins og það sé ekkert sem grípi börn tekjulágra.
Ég er vel menntuð og er jafnframt ein þeirra sem hefur unnið mikið og það hefur haft vond áhrif á stoðkerfið. Að auki er ég með mikla heyrnarskerðingu og taugakerfi sem er ansi skaddað eftir röð áfalla. Ég legg þó áherslu á að ég vil ekkert vera endalaust á örorku og að ég vinn alla daga að því að ná betri heilsu, bæði andlegri og líkamlegri – en að það er erfitt í þessum aðstæðum. Ég er aðeins rúmlega fertug og mig langar að læra eitthvað nýtt í þeirri von að geta í framtíðinni fengið atvinnu sem ég ræð við.
Ég bara spyr hvernig geta einstæðir foreldrar með lágar tekjur, og enga möguleika til að auka tekjur sínar og eru á leigumarkaði að eiga að geta greitt leigu og framfleytt sér og börnum sínum?