Kærar þakkir fyrir að vera í sambandi við okkur.
I stefnu okkar þá höfum við lagt mikla áherslu á börnin. Sérstaklega börn sem eiga undir högg að sækja. Þar má nefna börn sem ekki hafa íslensku sem móðurmál. Það viljum við grípa sérstaklega og hraða inngildingu þeirra í samfélagið. Það þarf að gera bæði með íslenskukennslu og aðstoð og hvatningu til að þau séu virkari í íþróttastarfi, listannámi og æskulýðsstarfi, eftir því hvað hentar hverjum og einum. Frístundastyrkurinn einn og sér nýtist ekki öllum börnum því fjölskyldur hafa ekki það sem vantar upp á til að geta greitt fyrir þátttöku í þessari starfsemi. Við viljum skoða hvaða leiðir eru mögulegar til að grípa þennan hóp sérstaklega. En það þýðir líka að grípa einnig önnur börn sem búa við sambærilegar aðstæður (t.d. Börn sem barnaverndarnefnd þarf að hafa reglulega afskipti af vegna vanrækslu).
Eins og kom fram í póstinum frá þér þá vegur húsnæðiskostnaður þungt. Við styðjum áframhaldandi uppbyggingu óhagnaðardrifins leiguhúsnæðis.
Við erum nýtt framboð og erum að læra margt um marga. Takk fyrir að vekja athygli á og fræða okkur með því að vísa okkur á vefsíðuna ykkar. Það er svo sannarlega fengur fyrir okkur og gott veganesti fyrir okkur til að gera betur.
Hugljúfar kveðjur,
Hjördís Dröfn
GÓÐAN DAGINN framboðið
- sæti framboðsins