Category: Uncategorized

  • Vinstrihreyfingin grænt framboð

    Þegar stórt er spurt er úr miklu að velja hvað varðar áherslur í málefnum fátæks fólks, enda mikilvægur málaflokkur.

    Við í Vinstri Grænum í Akureyrarbæ höfum lagt mikla áherslu á það að fátækt sé ekki bara skortur á tekjum, heldur samfélagslegt mein með alvarlegar afleiðingar t.d. húsnæðis-óöryggi, ójafn aðgangur að þjónustu, kerfisbundin jaðarsetning og félagsleg einangrun.
    Í okkar stefnu leggjum við mikla áherslu á að velferð, aðgengi, og opinber þjónusta á að vera samfélagsleg ábyrgð en ekki markaðsvara.

    Húsnæði á að vera á viðráðanlegu verði, og á að vera tryggt. Við leggjum áherslu á húsnæði fyrir fólk en ekki fjárfesta, og viljum endurskoða sérstaka húsnæðisaðstoð þannig að hún nái einnig til tekjulágra hópa sem falla utan núverandi félagsmatskerfis. Núverandi kerfi geta skilið lágtekjufólk og fólk í ótryggri stöðu eftir án stuðnings. Við viljum efla óhagnaðardrifin leigufélög og félagslegt húsnæði, og stuðla að því að byggt verði eftir raunverulegri þörf á húsnæði frekar en gróða-viðmiðum.

    Sterkt velferðarkerfi er undirstaða góðs samfélags. Aðgengi og inngilding eiga að vera lykilatriði í samfélagi. Koma þarf í veg fyrir að fólk falli á milli kerfa. Við viljum því samþætta betur velferðar- og félagsþjónustu þar sem þarf svo að fólk í viðkvæmri stöðu þurfi ekki að leita á milli stofnana  eftir aðstoð. Sömuleiðis að fólk hafi möguleika á að lifa og viðhalda mannlegri reisn.

    Styðjum jaðarsetta og viðkvæma hópa. Tekjulágar fjölskyldur, heimilislaust fólk, fólk með t.a.m. geðrænar og/eða taugaþroskatengdar áskoranir, fatlað fólk, hælisleitendur, og fólk sem býr við félagslega einangrun eða útilokun þurfa aukinn stuðning hvað varðar aðgengilegt húsnæði, atvinnuþátttöku, virkniúrræði, og útvíkkun viðeigandi úrræða (eins og NPA þar sem við á) eftir þjónustuþörf. Við höfum einnig talað fyrir neyðarbúsetuúrræðum (gistiskýlum) fyrir heimilislausa til að nefna dæmi.

    Draga þarf úr barnafátækt og styðja fjölskyldur. Til þess að styðja við börn þarf að lækka daglegan kostnað heimila. Baráttan tengist jöfnum tækifærum og þátttöku barna í samfélaginu. Menntakerfið er mikilvægt jöfnunartól og getur og á að draga úr áhrifum fátæktar. Í okkar stefnu viljum við gjaldfrjálsar máltíðir í leikskólum, hækkandi frístundastyrk eftir fjölda barna, sumarfrístund á fyrstu árum grunnskóla, og að efla innleiðingu farsældar barna og tryggja viðeigandi úrræði.

    Varðandi hinn endann á aldursröðinni þá höfum við líka hugsað til þeirra eldri borgara og aldraðra sem hvað bágast standa. Við höfum orðið vör við að hópur sem stendur hvað best – heyrist mest í. Við höfum hins vegar heyrt af neyðinni hjá einstaklingum innan hópsins sem fer ekki mikið fyrir. Má þar nefna frásögn starfsmanna Norðurhjálpar (hjálparsamtök á Akureyri) sem lýsa því hversu mikil skömm er hjá eldri einstaklingum við að leita sér aðstoðar. Mikill skortur er á hjúkrunarrýmum á Akureyri, eldri borgarar þurfa því að búa heima og eru í raun hvattir til þess í lengstu lög. Hins vegar er þjónustan háð ákveðnum takmörkunum og dæmi um að fólk þurfi að kaupa sér þjónustu á við þrif og annað til að geta búið sjálfstætt. Það er því ójöfnuður fólginn í því, þar sem ekki öll hafa efni á því. Síðan höfum við talað fyrir tekjutengdum styrkjum. Að skoðaðar verði leiðir til að styðja betur við eldri borgara á almennum leigumarkaði er sömuleiðis eitt af okkar stefnumálum – og þar hugsum við sérstaklega til þeirra sem festast á almennum leigumarkaði og þar með geta búið við ótryggar aðstæður.
    Sömuleiðis er okkur umhugað um málefni hópa með tví- og fjölþættan vanda. Þá oft flækjast málin og því miður, þar sem sumar dyr lokast þegar vandinn verður flóknari.

    Hægt er að nýta opinbera innviði sem jöfnunartæki, þar sem almenningssamgöngur, velferðarþjónusta, menntun og aðgengi að menningu getur dregið úr ójöfnuði og auðveldað tekjulægri hópum þáttöku í samfélaginu. Endalaus markaðsvæðing og útvistun verkefna er til þess búin að auka ójöfnuð, og að gera aðgang að samfélaginu að markaðsvöru, þar sem tekjulágir hópar og vinnandi fólk verða undir.

    Réttlátt samfélag krefst velferðarkerfis sem virðir mannréttindi íbúa og mætir þeim á þeirra forsendum, með valdeflingu og virðingu að leiðarljósi. Aðgengi allra til þátttöku í samfélaginu skal vera tryggt. Inngilding og bann við mismunun skal vera leiðarljós í allri starfsemi sveitarfélagsins.

    Við höfum jafnan einnig lagt áherslu að hlusta á raddir íbúa í Hrísey og Grímsey, og að gleyma því ekki að fólk úr öllum stéttum samfélagsins býr í flestum hverfum Akureyrarbæjar.

    Að lokum viljum við nefna að við vonumst til að komast nálægt því að ná utan um þennan vanda og þær leiðir og lausnir sem vonandi verður hægt að fara. Við höfum alltaf verið jöfnuðarflokkur en áttum okkur á því að við erum ekki fullkomin og þiggjum við líka allar ábendingar og opið samtal um þau skref sem þarf að taka til að vinna gegn fátækt.

    Takk fyrir ykkar framlag í þágu þjóðarinnar og takk fyrir spurningarnar og póstinn.

     

    Bestu kveðjur,

    Frambjóðendur VG