EAPN (European Anti-Poverty Network) eru evrópsk samtök sem stofnuð voru árið 1990 og eru mynduð af frjálsum félagasamtökum.
Helstu markmið EAPN eru að berjast gegn fátækt og félagslegri einangrun og að verja hagsmuni þeirra sem búa við fátækt. EAPN lítur svo á að fátækt og félagsleg einangrun séu brot á grundvallar mannréttindum því fátækt gerir fólki ekki kleift að lifa með reisn. Orsakavaldar fátæktar er flókið samspil margra ólíkra þátta og því þarf að ráðast gegn þeim á breiðum grunni.
Virk þátttaka fólks sem lifir í fátækt er nauðsynleg svo hægt sé að finna ástæður fátæktar og félagslegrar einangrunar og um leið er stuðlað að valdeflingu þessara einstaklinga. Valdefling felst m.a. í að styrkja sjálfsmynd og félagslega vitund einstaklingsins þannig að viðkomandi finnist hann geta haft áhrif á aðstæður sínar.
Undirbúningur að stofnun EAPN á Íslandi hófst í ársbyrjun 2011. Vorum við formlega tekin inn í Evrópusamtökin þann 17. júní sama ár á aðalfundi þeirra í Lissabon og þann 4. nóvember var fyrsti aðalfundur EAPN á Íslandi haldinn. Aðildarfélög EAPN á Íslandi eru hjálparsamtök og hagsmunasamtök sem hafa það sem hluta af markmiðum sínum að vinna að málefnum fólks sem býr við fátækt.
Starf EAPN í hverju aðildarlandi felst í að vekja athygli á fátækt í samfélaginu og að reyna að hafa áhrif á stefnu stjórnvalda en ekki síður að stuðla að valdeflingu fólks sem býr við fátækt og þá félagslegu einangrun sem hún orsakar.