Sjálfstæðisflokkurinn telur að eitt mikilvægasta verkefni sveitarfélaga í baráttunni gegn fátækt sé að draga úr íþyngjandi húsnæðiskostnaði og skapa fólki raunhæf tækifæri til fjárhagslegs sjálfstæðis. Við teljum að besta langtímaleiðin til að lyfta fólki úr viðvarandi fátækt sé að fleiri geti eignast eigið húsnæði og byggt þannig upp öryggi, stöðugleika og eignir fyrir sig og fjölskyldur sínar.
Áherslur okkar í húsnæðismálum snúa því að því að stórauka framboð húsnæðis í Reykjavík með hraðari uppbyggingu, einfaldara skipulagsferli og minni hindrunum fyrir byggingu nýrra íbúða. Við viljum fjölga byggingarlóðum, hraða afgreiðslu mála hjá skipulags- og byggingaryfirvöldum og draga úr kvöðum sem hækka húsnæðisverð. Markmiðið er að lækka þrýsting á húsnæðismarkaði og bæta stöðu bæði leigjenda og þeirra sem vilja komast inn á eignamarkaðinn.
Við leggjum jafnframt áherslu á að öflugt velferðarsamfélag byggi á samstarfi hins opinbera, félagasamtaka og fagfólks. Frjáls félagasamtök sinna víða mikilvægu starfi fyrir fólk sem býr við fátækt eða félagslega einangrun og mikilvægt er að sveitarfélög eigi við þau gott og virkt samstarf. Reykjavíkurborg á ekki að reyna að leysa öll samfélagsleg verkefni ein heldur vinna markvisst með þeim aðilum sem búa yfir reynslu, þekkingu og trausti í nærumhverfinu.
Sjálfstæðisflokkurinn vill samfélag þar sem fleiri hafa raunveruleg tækifæri til að bæta eigin hag, taka þátt í samfélaginu og byggja upp örugga framtíð fyrir sig og sína.
Kveðja,
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík