• Píratar

    Hverjar eru áherslur ykkar í málefnum fátæks fólks?

     

    Píratar vilja draga úr fjárhagslegu álagi heimila, styrkja félagslegt öryggi og bæta

    aðgengi að grunnþjónustu óháð efnahag.

     

    Píratar leggja sérstaka áherslu á:

     

    • Píratar ætla aðstyðja við óhagnaðardrifin húsnæðisfélag sem ætlað er að

    tryggja fólki öruggt húsnæði á viðráðanlegu verði, líka og Bjarg íbúðafélag.

    Það eru mannréttindi að eiga þak yfir höfuðið og húsnæði er félagslegt

    öryggismál.

     

    • Gjaldfrjáls og aðgengilegri þjónustu fyrir barnafjölskyldur. Píratar vilja hækka

    frístundastyrkinn en einnig gera samkomulag við íþróttafélög svo þau stemmi

    stigu við hækkun gjalda í takt við hækkun frístundastyrks.

     

    • Píratar vilja Borgarlínuna í núverandi mynd til þess að tryggja að plön um

    uppbyggingu hennar standist. Gott aðgengi að almenningssamgöngum er

    gríðarlega mikilvægt til þess að draga úr fjárhagslegu álagi. Enginn ætti að

    vera tilneyddur til þess að reka einkabíl.

     

    • Píratar vilja fleiri félagsleg úrræði í nærumhverfi fólks, svo sem

    samfélagsmiðstöðvar, stuðningshópa og virkniúrræði.

     

    • Píratar styðja húsnæði fyrst stefnu til þess að spyrna gegn heimilisleysi þar

    sem að áhersla er lögð á að koma fólki í öruggt húsnæði áður en tekist er á

    við önnur vandamál, svo sem fíknivanda. Öruggt húsnæði er forsenda fyrir því

    að hægt sé að takast á við önnur vandamál.