Framsókn í Hafnarfirði leggur áherslu á samfélag þar sem allir fá tækifæri til að lifa með reisn, öryggi og virkri þátttöku óháð efnahag eða félagslegri stöðu. Við viljum styrkja velferðarkerfið með snemmtækum stuðningi, markvissum forvörnum og auknu aðgengi að þjónustu þannig að fólk fái stuðning við hæfi.
Við leggjum sérstaka áherslu á að bæta aðgengi að húsnæði og tryggja fjölbreytt búsetuúrræði, meðal annars fyrir fyrstu kaupendur og fólk sem þarf á félagslegum stuðningi að halda. Þá viljum við efla þjónustu við fjölskyldur, hækka frístundastyrk til að tryggja jafnt aðgengi barna að íþróttum og tómstundum og styrkja geðheilbrigðis- og forvarnarstarf.
Við teljum einnig mikilvægt að skapa sterkt atvinnulíf og fjölbreytt atvinnutækifæri því fjárhagslegt öryggi og virk þátttaka á vinnumarkaði eru ein sterkasta leiðin til að draga úr fátækt og félagslegri einangrun.
Að okkar mati snúast velferðarmál ekki aðeins um fjárhagsaðstoð heldur líka um að efla lífsgæði, sjálfstæði og tækifæri fólks til að blómstra í samfélaginu.
Við í Framsókn gerum okkur þó grein fyrir því að aðstæður fólks eru mismunandi og því mikilvægt að koma á móts við ólíkar þarfir eins og hægt er. Markmiðið er þó alltaf að aðstoða fólk við að komast út úr fátæktargildru með til dæmis stuðningi á vinnumarkaði, ýmsum virkniúrræðum eða með því að styðja við menntun. Þannig er hægt að rjúfa félagslega einangrun og auka tækifæri til hærri tekna einstaklinga.
Fyrir hönd Framsóknar í Hafnarfirði