Takk fyrir fyrirspurnina.
Fátækt á Íslandi er fyrst og fremst afleiðing pólitískra ákvarðana — ekki persónulegs brests fólks. Þegar tugþúsundir lifa við fjárhagsóöryggi á sama tíma og húsnæðiskostnaður, vextir og álögur hækka stöðugt, þá er það merki um kerfi sem er hætt að þjóna almenningi.
Stærsta orsök fátæktar í Reykjavík er húsnæðiskostnaður. Fólk vinnur fulla vinnu en nær samt ekki endum saman vegna okurvaxta, leiguverðs og skorts á aðgengilegu húsnæði. Þetta er ekki eðlilegt ástand og það á ekki að normalísera það.
Okkar Borg vill ráðast að rót vandans. Við leggjum áherslu á hraða og umfangsmikla uppbyggingu íbúðarhúsnæðis, meðal annars á Geldinganesi, með fjölbreyttum húsnæðiskosti fyrir venjulegt fólk — ekki bara þá sem hafa efni á síhækkandi fermetraverði.
Við höfnum þeirri stefnu að gera bílaeign að lúxus. Margir sem búa við lág laun treysta á bílinn sinn til að komast til vinnu, sækja börn og halda heimilinu gangandi. Þess vegna viljum við raunhæfa borgarskipulagningu með nægum bílastæðum og lægri ferðakostnaði fyrir fjölskyldur.
Við segjum það líka skýrt: okurvextir eru félagslegt réttlætismál. Þeir flytja gríðarlega fjármuni frá heimilunum yfir til fjármálakerfisins og halda fólki föstu í skuldafjötrum. Reykjavíkurborg á að beita sér af fullum þunga gagnvart stjórnvöldum þegar stefna ríkisins er farin að grafa undan lífskjörum borgarbúa.
Við viljum einnig tryggja jafnræði í dagvistun þannig að einkareknir leikskólar fái sömu greiðslur og borgarreknir. Foreldrar eiga ekki að sitja uppi með verri stöðu eða minna aðgengi vegna rekstrarforms leikskóla.
Fátækt er ekki að fara að minnka með fleiri skýrslum, starfshópum og endalausum loforðum um að „skoða málið“. Hún minnkar þegar fólk fær raunhæfan möguleika á að halda meira eftir af laununum sínum, komast í öruggt húsnæði og lifa með reisn.
Og það er okkar skýra stefna.
Bestu kveðjur,
Ágústa Árnadóttir
f.h. Okkar Borg