Kærar þakkir fyrir afar mikilvæga spurningu um alltof oft vanræktan málaflokk og samfélagshóp.
Það allra mikilvægasta sem við getum gert til að útrýma fátækt á Íslandi er róttæk óhagnaðardrifin og félagsleg húsnæðisstefna. Við störfum náið með leigjendum og fulltrúum Leigjendasamtakanna í okkar stefnumótun og hún er því eftirfarandi. Við viljum stofna Byggingafélag Reykjavíkur og byggja sjálf á óhagnaðardrifnum grunni, stórlækka þannig byggingakostnað og setja megnið beint út í óhagnaðardrifna leigu, enda gífurlegur skortur þar á og langir biðlistar. Lítill hluti færi í sölu á kostnaðarverði fyrir lágtekjufólk, en krítískt þá færi líka hluti beint inn í Félagsbústaði kostnaðarlaust.
Staðan er í dag þannig að Félagsbústaðir eru reknir til að mæta rekstrarkostnaði og er félagið þannig í eðli sínu óhagnaðardrifið, EKKI félagslegt. Raunverulegt félagslegt kerfi fyrir fólk undir fátæktarmörkum myndi miða leiguverð að greiðslugetu hvers og eins, ekki fjármagns- og rekstrarkostnaði. Lykilforsenda þess að gera Félagsbústöðum það kleift á sama tíma og fjölgað er íbúðum á þeirra vegum er að veita félaginu ókeypis íbúðir sem borgin myndi byggja verulega ódýrt vegna frírra lóða og án hagnaðarsjónarmiða, beint inn í Félagsbústaði og gera félaginu kleift að lækka leiguverð sín og koma á endanum á greiðslugetu sem viðmiði.
Þar að auki þarf að tryggja að framboð af óhagnaðardrifnu leiguhúsnæði standi lægstu tekjutíundum landsins ævinlega til boða því margir þeir sem sitja fastir á leigumarkaði horfa fram á fátækt á efri árum þegar að þau verða án séreignar. Það þarf nauðsynlega fyrirbyggjandi aðgerðir af þessum toga til að koma í veg fyrir stigmagnandi aukningu fátækar.
Við viljum einnig fara í “húsnæði fyrst” nálgun gegn heimilisleysi og öðrum félagslegum vandamálum, hægt er að fara strax í að tryggja nægt framboð einingarhúsa til að útrýma heimilisleysi á meðan byggt er varanlegra og vandaðra húsnæði upp í uppsafnaða þörf, bæði í félagslega kerfinu og hinu óhagnaðardrifna (eða “almenna”).
Eðlilega er hægt að fara nánar út í alls kyns velferðarmál þar að auki og málaflokkur fátæktar er ekki einfaldur að leysa, því fátækt stafar oft af margvíslegum og breytilegum ástæðum, en þessi nálgun í húsnæðismálum væri það veigamesta og hægt er að ganga í strax á næsta kjörtímabili ef vilji er til. Það er vilji okkar Sósíalista.
Bestu kveðjur,
f.h. Sósíalistaflokks Íslands
Jón Ferdínand Estherarson, formaður Sósíalistafélags Reykjavíkur og 5. sæti á lista.