• Samfylking

    Það er auðvitað ótrúlega margt sem okkur langar til að breyta í borginni, og rosalega margt af því veltur á því að rekstur borgarinnar sé góður og skilvirkur, að hver króna nýtist á sem bestan hátt í þágu borgarbúa. Við erum stolt af því að Reykjavík hefur, undir stjórn Samfylkingarinnar, verið leiðandi í mannréttindamálum og sinnt velferðarþjónustu langt umfram önnur sveitarfélög. Það birtist sérstaklega í því að þrjár af hverjum fjórum félagslegum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu eru í Reykjavík og tvær af hverjum þremur íbúðum ætluðum fyrir tekjulægri hópa. En það má að sjálfsögðu gera betur og það ætlum við að gera. Þjónusta borgarinnar á að vera til þess gerð að stuðla að því að við upplifum okkur tilheyra sama samfélagi. Samfélag virkar best ef öll fá að njóta sín og þess vegna leggjum við áherslu á þjónustu við eldri borgara, fátækt fólk, fatlað fólk og fjölskyldur þeirra, langveikra barna og barna af erlendum uppruna. Það eru hóparnir sem standa höllum fæti og þarf að greiða aðgengi að tækifærum fyrir. Stuðningur við fólk sem býr við fátækt á fyrst og fremst að grundvallast á samráði, inngildingu, valdeflingu og virðingu. Þar skiptir mestu að skapa leiðir til virkni, þátttöku og aukinna tækifæra.”

     

    bkv.

    Sonja