• Vinstrið

    Vinstrið leggur áherslu á að Reykjavík og samfélagið í heild sé mótað út frá efnahagslegu og félagslegu réttlæti og mannréttindum, þar sem velferð og öryggi eru í forgangi. Markmið Vinstrisins er að skapa samfélag sem nær til allra og að vinna markvisst gegn fátækt og félagslegri einangrun.

    Lykilatriði í áherslum Vinstrisins er að tryggja raunverulegt húsnæðisöryggi. Húsnæði á að vera heimili en ekki fjárfestingarvara. Við viljum auka framboð á félagslegu húsnæði, forgangsraða óhagnaðardrifinn uppbyggingu og tryggja að fólk geti búið við viðráðanlegan húsnæðiskostnað og þar með öryggi.

    Menntakerfið er mikilvægt jöfnunartól og getur dregið úr áhrifum fátæktar. Tryggja þarf að öll börn hafi jafnt aðgengi að skóla- og frístundastarfi, óháð efnahag, og viðhalda og efla þarf fríar skólamáltíðir í grunnskólum. Einnig þarf að koma á fríum máltíðum í leikskólum. Þá þarf að tryggja og jafna aðgengi að sérfræðiþjónustu í skólum, svo sem sálfræðingum og talmeinafræðingum.

    Vinstrið leggur jafnframt áherslu á að styrkja félagslega velferð og draga úr félagslegri einangrun með öflugu félags- og frístundastarfi fyrir börn, ungmenni og eldri borgara. Tryggja þarf að jaðarsettir hópar fái viðeigandi stuðning og fjárhagsaðstoð sé raunverulegt öryggisnet sem tryggir mannsæmandi framfærslu.

    Einnig er lögð áhersla á að almenningssamgöngur séu efnahagslega aðgengilegar og skilvirkar, þar sem þær gegna lykilhlutverki í að jafna aðgengi að samfélagsþátttöku og minnka kostnað heimila.

    Að lokum leggur Vinstrið áherslu á að samfélagið taki utan um alla íbúa, styðji við fólk í viðkvæmri stöðu og að vinna markvisst gegn fátækt og félagslegri einangrun.

    Bestu kveðjur,
    Sanna Magdalena Mörtudóttir