Lög EAPN á Íslandi,
Samtaka gegn fátækt og félagslegri einangrun (European Anti Poverty Network in Iceland)
1.gr. Nafn félagsins og tengsl við móðurfélag þess
Félagið heitir EAPN á Íslandi, samtök gegn fátækt og félagslegri einangrun. Félagið er Íslandsdeild Evrópusamtakanna European Anti-Poverty Network (EAPN). Félagið starfar samkvæmt lögum nr. 119/2019 um félög til almannaheilla sem starfa yfir landamæri.
2.gr. Heimili og varnarþing
Heimili og varnarþing félagsins er í Reykjavík.
3.gr. Tilgangur og markmið
Tilgangur og markmið félagsins er:
- Að berjast gegn fátækt og félagslegri einangrun
- Að hvetja til árangursríkra aðgerða gegn fátækt
- Að starfa með og kynna opinberlega sjónarmið fólks í fátækt
- Að stuðla að opinni umræðu um málefnið og vera talsfólk þeirra sem búa við fátækt.
4. gr. Starfsemi
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að þrýsta á og kynna íslenskum og evrópskum stjórnvöldum og stofnunum leiðir til að þróa og koma á árangursríkum aðferðum er sporna gegn fátækt og félagslegri einangrun. Félagið leggur áherslur á að skapa tækifæri fyrir fólk sem býr við fátækt að koma sjónarmiðum sínum á framfæri til að bæta kjör sín.
5.gr. Félagsaðild
Félagsaðild er opin öllum félagasamtökum og öðrum lögaðilum er starfa innan þriðja geirans sem vinna gegn fátækt, félagslegri einangrun, að málefnum fólks í fátækt og þeirra sem eru félagslega einangraðir. Grasrótarsamtök sem vinna að þessum málefnum með áherslu á valdeflingu fólksins eru sérstaklega velkomin.
6.gr. Umsókn um aðild
Umsókn um aðild skal berast stjórn EAPN á Íslandi.
- Félagsmenn geta verið félög en ekki einstaklingar.
- Umsókn skal fylgja lög viðkomandi umsóknarfélags.
- Stjórn er heimilt að taka ákvörðun um félagsaðild.
Telji stjórn umsóknarfélag ekki uppfylla skilyrði félagsaðildar, skal synja umsókninni skriflega með rökstuðningi.
7. gr.Úrsögn aðildarfélags
Aðildarfélag getur sagt sig úr EAPN á Íslandi. Skrifleg úrsögn skal berast stjórn félagsins, undirrituð af meirihluta stjórnar félagsins og tekur þegar gildi.
8.gr. Brottvikning félags
Aðalfundur getur vikið aðildarfélagi úr félaginu, vinni það gegn hagsmunum félagsins, gegni ekki þeim skyldum sem því ber samkvæmt lögum þessum eða uppfylli ekki lengur skilyrði aðildar. Samþykki a.m.k. 2/3 hluta greiddra atkvæða aðalfundarfulltrúa þarf til brottvikningar.
9.gr. Starfsár
Starfsár og reikningsár er almanaksárið. Stjórnin skal hafa lokið gerð ársreikninga og lagt fyrir endurskoðanda, skoðunarmann eða trúnaðarmann eigi síðar en einum (1) mánuði fyrir aðalfund.
10. gr. Aðalfundur
Aðalfund skal halda eigi síðar en 1. júní ár hvert og skal boða til hans með minnst tveggja vikna fyrirvara með sannanlegum hætti. Í fundarboði skal greina hvar og hvenær fundurinn verður haldinn. Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað.
Til setu á aðalfundi eiga rétt fulltrúar allra aðildarfélaga EAPN á Íslandi sem greitt hafa félagsgjöld ársins. Skal hvert aðildarfélag eiga allt að fimm (5) fulltrúa á aðalfundi og skulu þeir tilnefndir af stjórn viðkomandi félags.
Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna ræður úrslitum mála.
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla stjórnar lögð fram
- Afsal eða kaup fasteignar eða annarar eignar sem þýðingu hefur fyrir rekstur félagsins
- Reikningsár félagsins og samþykkt ársreiknings
- Lagabreytingar
- Ákvörðun félagsgjalds
- Kosning stjórnar
- Kosning endurskoðanda, skoðunarmanna eða trúnaðarmanna
- Önnur mál.
11.gr. Kosning stjórnar
Stjórn félagsins skal skipuð einum (1) félagsmanni frá hverju aðildarfélagi og einum (1) til vara. Skulu stjórnarmenn kosnir á aðalfundi og eru allir fulltrúar aðalfundar kjörgengir. Skal kjörtímabil hvers almenns stjórnarmanns vera eitt (1) ár.
Aðalfundur skal kjósa beinni kosningu formann, varaformann, ritara stjórnar og gjaldkera. Á oddatöluári skal aðalfundur kjósa formann og ritara stjórnar en á árum sem ekki eru oddatöluár skal aðalfundur kjósa varaformann og gjaldkera. Kjörtímabil formanns, varaformanns, ritara og gjaldkera skal vera tvö (2) ár.
Formaður, varaformaður, ritari og gjaldkeri skulu aldrei sitja samfleytt í embætti lengur en þrjú (3) kjörtímabil.
12.gr. Endurskoðun
Á aðalfundi skal kjósa einn eða fleiri endurskoðendur, endurskoðunarfyrirtæki, skoðunarmenn eða trúnaðarmenn úr hópi félagsmanna. Skulu þeir skoða reikninga félagsins fyrir hvert starfsár og leggja niðurstöður sínar fyrir aðalfund. Endurskoðendur eða skoðunarmenn má ekki kjósa úr hópi stjórnarmanna eða starfsmanna félagsins. Trúnaðarmenn sem kosnir eru úr hópi félagsmanna mega ekki sitja í stjórn félagsins eða gegna stjórnunarstörfum fyrir það.
13.gr. Hlutverk stjórnar
13.1 Formaður
Formaður er málsvari stjórnar og kemur fram fyrir hennar hönd varðand málefni félagsins nema stjórn ákveði annað. Formaður er jafnframt opinber talsmaður EAPN á Íslandi. Formaður boðar og undirbýr stjórnarfundi.
13.2 Varaformaður
Varaformaður er staðgengill formanns.
13.3 Ritari
Ritari gætir þess að fundargerðir stjórnar séu ritaðar samkvæmt lögum og þeim reglum er um þær gilda.
Ritari skal gæta þess að fundargerð fylgi öll þau gögn sem að boðun fundarins lutu, auk þeirra sem framlögð kunna að vera á fundinum sjálfum. Ritari aðstoðar auk þess formann og eftir atvikum varaformann við undirbúning stjórnarfunda sé þess þörf.
Ritari er staðgengill varaformanns.
13.4 Stjórnarmenn og varamenn
Í upphafi starfstíma síns skulu stjórnarmenn og varamenn allir undirrita eið um trúnað við félagið og þagnarskyldu. Frumrit þessara gagna skulu vistuð í húsakynnum félagsins á öruggan hátt. Þagnarskylda helst þó látið sé af stjórnarstarfi.
Stjórnarmönnum ber að kynna sér þau mál er fjalla á um á stjórnarfundi. Til að geta innt skyldur sínar samviskusamlega af hendi skulu varamenn hafa sama aðgang að og fá send öll viðhlítandi gögn, sem um aðalmann væri að ræða, enda bera þeir sömu réttindi og skyldur sem aðrir stjórnarmenn.
Varamenn sitja fundi stjórnar þegar forföll stjórnarmanns verður. Varamönnum ber skylda til að kynna sér og taka upplýsta ákvörðun um öll þau mál er fjallað er um á fundum stjórnar. Varamaður tekur sæti aðalmanns í stjórn ef til afsagnar þess síðarnefnda kemur.
Geti varamaður ekki tekið við skyldum aðalmanns skal aðildarfélag það sem tilnefndi þá tilnefna auka fulltrúa fyrir sína hönd í stjórn. Sá fulltrúi skal hafa málfrelsi og tillögurétt en vera án atkvæðisréttar.
13.5 Réttindi og skyldur stjórnarmanna og varamanna
Stjórnarmönnum og varamönnum er skylt að gæta þagnarskyldu um það sem þeir kunna að verða áskynja í starfi sínu og leynt á að fara.
Stjórnarmönnum og eftir atvikum varamönnum ber að sitja stjórnarfundi, starfa í nefndum á vegum stjórnarinnar og leggja til þeirra starfa þá persónulegu og faglegu þekkingu sem nýst getur félaginu.
Stjórnarmanni er skylt að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða náið venslafólk hans og félagasamtök eða félög þar sem hann situr í stjórn. Stjórnarmanni er skylt að upplýsa um atvik sem geta valdið vanhæfi hans og skal hann gera það um leið og hann verður slíks var. Skal hann þá á ekki nokkurn hátt taka þátt í meðferð slíks máls og skal hann ekki hafa aðgang að gögnum eða vera viðstaddur umræðu stjórnar.
Stjórn tekur ákvörðun um hæfi einstakra stjórnarmanna ef vafamál kemur upp. Stjórnarmaður sem hlut á að máli skal víkja af fundi þegar stjórn greiðir atkvæði um hæfi hans.
14.gr. Stjórnarfundir
Fundir stjórnar eru að jafnaði einu sinni í mánuði. Fundir stjórnar skulu boðaðir með dagskrá. Leitast skal við að senda stjórnarmönnum dagskrá fundar með góðum fyrirvara.
Heimilt er að kalla til aukafundar ef þurfa þykir.
Mál sem tekin eru upp undir liðnum önnur mál og ekki hafa verið kynnt í fundarboði, skulu að jafnaði ekki afgreidd fyrr en á næsta fundi stjórnar.
Stjórnin skiptir með sér verkum. Stjórn félagsins fer með málefni félagsins milli aðalfunda. Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar.
Stjórn er heimilt að halda opna stjórnarfundi.
15.gr. Félagsfundir
Fundarstjóra á félagsfundi ber að sjá til þess að ákvarðanir fundar séu færðar til bókar. Fundarstjóri og minnst tveir fundarmanna, sem félagið eða fundurinn hefur til þess valið, skulu fara yfir og staðfesta fundargerð með undirritun sinni. Félagsmenn eiga rétt á að fá bókanir skráðar krefjist þeir þess.
16.gr. Félagsgjald
Aðalfundur ákveður félagsgjald ár hvert. Aðildarfélög skulu greiða árgjald eigi síðar en 1. mars ár hvert til að eiga kost á setu í stjórn EAPN.
17.gr. Slit félags
Ef til slita félagsins kemur þá ganga eignir þess í jöfnum hlutföllum til aðildarfélaga sem greitt hafa aðildargjöld þegar til slita félags kemur.
18.gr. Lög og lögsaga
Ef upp koma deilumál sem ekki finnast í lögum þessum þá skal hlíta ákvæðum laga um félög til almannaheilla með starfsemi yfir landamæri, svo og öðrum íslenskum lagaákvæðum er við geta átt.
19.gr. Lagabreytingar
Lögum félagsins má aðeins breyta á aðalfundi. Lagabreyting telst ekki samþykkt nema hún hljóti ¾ atkvæða á aðalfundi.
Tillögur um breytingar á lögum, skulu sendar stjórn ekki síðar en einum (1) mánuði fyrir aðalfund og skal stjórn senda tillögur til lagabreytinga út með aðalfundarboði.
20.gr. Gildistaka
Lög þessi eins og þeim var síðast breytt á aðalfundi 10.júní 2025 öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi eldri lög EAPN á Íslandi.
